Dale Carnegie námkskeiðið- 3ja daga
Þó mörgum finnist þeir nú þegar búa yfir eiginleikum sem hafi áhrif á árangur þeirra þá muntu á þessu námskeiði komast að þvæi að jafnvel þeir allra bestu uppgötva tækifæri til að vaxa og bæta sig. Hæfni eins og samskipti við aðra, kraftmikil tjáning og stjórnun á viðhorfi getur haft varanleg áhrif á árangur þinn. Þetta námskeið getur umbreytt lífi þínu og veitt þér innblástur til að fara framúr þínum björtustu vonum.
Það sem þú lærir
Lærðu hvernig þú getur skarað framúr í tjáningu sem gerir þér kleift að hafa áhrif á aðra og að byggja upp sambönd sem einkennast af trausti. Vertu meistari í að takast á við erfiðar einstaklinga og aðstæður og komdu auga á leiðir til að viðhalda alltaf jákvæðu viðhorfi gagnvart áskorunum og breytingum. Kannaðu hvernig þú getur haft áhrif á árangur þinn í starfi með því að auka sjálftraust þitt og brjóta niður hindranir.
Af hverju er það mikilvægt
Námskeiðið hjálpar þér að hámarka hæfni sem þú þarft í nútíma viðskiptaumhverfi. Þú lærir að umgangast fólk af meiri fagmennsku og takast á við örar breytingar og aðstæður. Námskeiðið hentar vel þeim sem vilja skara framúr á sínu sviði.
Skrá mig á þetta námskeið
Þegar þú lýkur námskeiðinu muntu upplifa þig uppveðraða/nn með nýja framtíðarsýn. Að auki ferðu með áætlun um hvernig þú hrindir markmiðum í framkvæmd. Líttu á þetta sem 3 daga sem uppfæra þig á toppinn.